Psalms 136

1Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. 2Þakkið Guði guðanna, því að miskunn hans varir að eilífu, 3þakkið Drottni drottnanna, því að miskunn hans varir að eilífu, 4honum, sem einn gjörir mikil dásemdarverk, því að miskunn hans varir að eilífu, 5honum, sem skapaði himininn með speki, því að miskunn hans varir að eilífu, 6honum, sem breiddi jörðina út á vötnunum, því að miskunn hans varir að eilífu, 7honum, sem skapaði stóru ljósin, því að miskunn hans varir að eilífu, 8sólina til þess að ráða deginum, því að miskunn hans varir að eilífu, 9tunglið og stjörnurnar til þess að ráða nóttunni, því að miskunn hans varir að eilífu, 10honum, sem laust Egypta með deyðing frumburðanna, því að miskunn hans varir að eilífu, 11og leiddi Ísrael burt frá þeim, því að miskunn hans varir að eilífu, 12með sterkri hendi og útréttum armlegg, því að miskunn hans varir að eilífu, 13honum, sem skipti Rauðahafinu sundur, því að miskunn hans varir að eilífu, 14og lét Ísrael ganga gegnum það, því að miskunn hans varir að eilífu, 15og keyrði Faraó og her hans út í Rauðahafið, því að miskunn hans varir að eilífu, 16honum, sem leiddi lýð sinn gegnum eyðimörkina, því að miskunn hans varir að eilífu, 17honum, sem laust mikla konunga, því að miskunn hans varir að eilífu, 18og deyddi volduga konunga, því að miskunn hans varir að eilífu, 19Síhon Amorítakonung, því að miskunn hans varir að eilífu, 20og Óg konung í Basan, því að miskunn hans varir að eilífu, 21og gaf land þeirra að erfð, því að miskunn hans varir að eilífu, 22að erfð Ísrael þjóni sínum, því að miskunn hans varir að eilífu, 23honum, sem minntist vor í læging vorri, því að miskunn hans varir að eilífu, 24og frelsaði oss frá fjandmönnum vorum, því að miskunn hans varir að eilífu, 25sem gefur fæðu öllu holdi, því að miskunn hans varir að eilífu. 26Þakkið Guði himnanna, því að miskunn hans varir að eilífu.
Copyright information for Icelandic